Aðstaða

Aðstaða til golfiðkunar á Katlavelli er góð, klúbburinn hefur sinn ágæta golfskála, vélageymslu og geymslu fyrir golfsett félaga G.H.

Æfingasvæðið er býsna stórt, en árið 2009 opnaði einnig á svæðinu 6 holu æfingavöllur. Púttvöllur er einnig hluti af æfingasvæði klúbbsins.

Í vélageymslu klúbbsins eru þessar vélar hvað stærstar, ásamt auðvitað ýmsum smærri tækjum.

- Jacobsen LF3400 brautarvél – Toro Greenmaster3250 flatarslátturvél & Toro Groundmaster3500 “rough” sláttuvél.