Það hefur bráðnað aðeins af vellinum en það vantar alveg nokkrar gráður c.a. 15 væri fínt.
Eins og myndirnar sýna þá hefur aðeins farið af snjónum, sú fyrri er tekinn 11. apríl en seinni 15.apríl.
Fréttaritari GH var á vellinum í gær og þá heyrðust hamarshögg og læti úr skálanum. Húsnefndin var þá öll á svæðinu og eldhúsið var í “rúst” en það verður vonandi betri vinnuaðstaða á eftir, Einar og hans menn eru þekktir fyrir vönduð vinnubrögð.
Læt myndir fylgja með. Dilli var þarna líka og hjálpaði til en hann náðist ekki á mynd.
Nú fer aldeilis að styttast í tímabilið eða hvað!!! Solla er á fullu í breytingum á sjoppunni og fólk er farið að huga að sveiflunni.
Það hefur sést til manna á æfingasvæðinu, Baddi er víst kominn í gott form og ætlar sér stóra hluti í sumar.
Munum bara að ganga vel um, aðalvöllurinn er lokaður allri umferð en æfingasvæðið og litli völlurinn eru opinn.
Aukaaðalfundur GH var haldinn í golfskálanum fimmtudaginn 8/3.
19 félagar voru mættir.
Reikningar klúbbsins voru lagðir fram og voru þeir samþykktir samhljóða.
Gjaldskrárbreyting kom frá stjórn og var hún einnig samþykkt samhljóða. Gjaldskrá er hægt að skoða hérna.
Nýtt í gjaldskrá er fjaraðild og námsmannagjald.
Einnig var samþykkt að hafa skápaleigu 5.000.- fyrir allar stærðir skápa. Rafmagn verður lagt í vestastagáminn og rukkað sérstaklega fyrir það. Hurðir verða settar á alla skápa.
Undir liðnum önnur mál voru nokkrar umræður m.a. um inniæfingaaðstöðu og þörf fyrir fjölgun nýliða í GH. Hvetur stjórnin til þess að félagar horfi í kringum sig og athugi hvort þeir eigi vin sem langar að spila golf.
Þá kom fram á fundinum að Sólveig Skúladóttir ætlar að reka sjoppuna í sumar.
Mótaskráin fyrir sumarið er kominn á vefinn, Sparisjóðsmótaröðinn verður með nýju sniði í ár sjá HÉR. Nú er bara að búa til lið og vera með í skemmtilegri keppni.
Stjórnin minnir á aukaaðalfundinn n.k. fimmtudag 8. mars kl. 20.00 í golfskálanum.
Fundarefni: Ársreikningar 2011, árgjöld / vallargjöld, önnur mál.