Starfsemi

Starfsemi Golfklúbbsins felst að sjálfsögðu í því að þjónusta félaga Golfklúbbs Húsavíkur, sem og aðra gesti sem best. Golfklúbburinn hefur 1 heilsárstarfsmann sem hefur umsjón með umhirðu og ástandi Katlavallar, ásamt vélaeign klúbbsins. Yfir sumartímann bætist svo í starfsmannafjöldan.

Klúbburinn rekur veitingasölu á sumrin, frá kl 11:00 – 18:00 en þá er hægt að nálgast léttar veitingar og drykki og eins er þar hægt að versla ýmsa smávöru, s.s. golfbolta, tí, flatarmerki o.fl. Í golfskálanum er einnig hægt að fá leigt golfsett og kerrur þegar spila á völlinn. En þegar mót eru í gangi þá að sjálfsögðu er veitingasalan opin fram yfir mót.

Golfklúbburinn hefur yfir að ráða góðu æfingasvæði, með púttvelli og eins 6 holu æfingavelli, sem tekinn var í notkun árið 2008.