Klúbburinn

Golfklúbbur Húsavíkur var formlega stofnaður þann 26. júní 1967. Á stofnfund mættu 11 menn, en að auki höfðu 2 aðrir látið skrá sig og lýst áhuga á að vera með. Fyrsta stjórn GH var þannig skipuð: Formaður Ingimar S. Hjálmarsson, ritari Óli Kristinsson, gjaldkeri Reynald Jónsson, meðstjórnendur Ragnar Helgason og Björn Jónsson. Nánari upplýsingar um sögu klúbbsins má finna hér til hægri undir “Saga klúbbsins”.