Staðarreglur - Katlavöllur 2026
- Vallarmörk (regla 2.1) – Girðing (hvítir staurar) umhverfis völl, eru vallarmörk.
- Vítasvæði (regla 17) – Ef vítasvæði er einungis merkt á einni hlið teljast mörk þess framlengjast að vallarmörkum, eða óendanlega ef engin vallarmörk eru fyrir hendi.
- Grund í aðgerð (regla 16.1) – Svæði merkt með bláum línum eða bláum hælum. Hvert það skemmda svæði sem mótsstjórn eða tilnefndur fulltrúi hennar metur svo.
Hægra megin við 3/12 holu er grund í aðgerð.
Milli 1/10 holu og 3/12 holu er grund í aðgerð. - Fallreitir – Ef bolti liggur á 3/12. flöt eða snöggslegnu svæði umhverfis hana þegar 5/14. braut er leikin skal láta bolta falla á þar til gerðan fallreit sem er á 5/14. braut. Fallreiturinn er merktur með hvítum hæl með gulum topp.Í melum sitt hvoru megin við 3. braut má gegn einu víti láta bolta falla á merkta palla (hvítur/gulur hæll), á 1/10 teig, 4/13 teig og í mel hægra megin við 3/12 braut, þó ekki nær holu. Einnig er fallreitur (hvítur hæll) vinstra megin brautar á 5/14 holu.
- Staða hluta – Fjarlægðarmerki, brautarskilti, auglýsingarskilti, rafmagnskassar, hleðsustöðvar slátturóbóts og sjáanlegur hluti vökvunarkerfis eru óhreyfanlegar hindranir (Regla 24-2).Steinar í glompum eru hreyfanlegar hindranir (Regla 24-1).
- Bætt lega (tímabundin til 1. júlí) á brautum 1, 2, 3, 4 og 8 – Á snöggslegnu svæði á leið er leyfilegt að merkja og lyfta bolta, hreinsa og stilla upp innan einnar kylfulengdar frá upphaflegri legu, þó aldrei nær holu.
- Bolti á hreyfingu hittir hlut (slátturróbóta) af slysni
- Leika þarf boltanum þar sem hann liggur nema ef boltinn stöðvast á róbótanum, sbr. undantekningu 1 við reglu 11.1b – Bolti stöðvast á hlut á hreyfingu.
- Ef róbót skemmir kyrrstæðan bolta í leik gildir regla 4.2.c. – Leikmaður má þá skipta um bolta ef boltinn er skorinn eða sprunginn.
- Hafi boltinn færst úr stað gildir regla 9.6 og leggja þarf boltann á upphaflegan stað.
- Ef boltinn brotnar við að lenda í róbóta eftir högg gildir regla 4.2.b – Höggið gildir ekki og leika verður öðrum bolta þaðan sem fyrra högg var slegið.
Rafeindabúnaður eingöngu til fjarlægðarmælinga s.s. GPS og Laser er leyfður samkv. heimild í úrskurði 14-3/0,5 í Decisions of the Rules on Golf 2008/09.
Viðurlög fyrir brot á staðarreglum
- Holukeppni: Holutap.
- Höggleikur: Tvö högg í víti.
Leikmenn eru beðnir um að ganga vel um völlinn, nota flatargaffla, laga torfuför, raka bönkera og láta hrífur ofan í bönker.