Golfæfingar hefjast þriðjudaginn 7. júní og standa til 23. ágúst. Kennarar eru Heiðar Davíð frá Akureyri og Aron Bjarki. Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum. Verð fyrir sumarið er 25.000 og innifalið er aðild að klúbbnum. Hægt er að nýta frístundarstyrk ef menn kjósa það. 1.-5. bekkur kl. 13-15 á þriðjudögum og 13-14:30 á fimmtudögum 6.-10. bekkur kl. 15-17 á þriðjudögum og 14:30-16:00 á fimmtudögum. Við erum að taka upp nýtt skráningarkerfi, Sportabler sem tekið hefur við af Nora. Það ætti að verða komið upp hjá okkur fljótlega en þangað til fara skráningar og samskipti fram í gegnum golfklubburhusavikur@gmail.com
Jón Elvar rekur golfskálann í sumar.
Stjórn Golfklúbbs Húsavíkur hefur samið við Jón Elvar Steindórsson um rekstur golfskálans í sumar. Aðspurður segir Jón Elvar þetta kjörið verkefni fyrir fjölskylduna í sumar. Þau munu leggja metnað sinn í að taka vel á móti fólki sem kemur til að spila golf á þessum fallega 9 holu velli eða þeim sem einfaldlega reka inn nefið til að fá sér kaffibolla og fylgjast með kylfingum á vellinum. Ef að líkum lætur, verðu margt fólk á vellinum í sumar. Jón Elvar er matreiðslumaður að mennt og hefur víðtæka reynslu á rekstri gegnum árin.
Viðhald á golfskála.
Ný stjórn Golfklúbbs Húsavíkur tók þá ákvörðun á sínum fyrsta fundi að hún myndi einnig sinna hlutverki húsnefndar þetta árið.
Síðustu ár hafa verið miklar umræður innan klúbbsins um byggingu nýs golfskála og í raun stöndum við enn á upphafsreit í þeim efnum. Markmið nýrrar stjórnar er að láta draum félagsmanna um nýjan golfskála rætast á næstu 3 árum. Á meðan þarf starfsemin að vera í núverandi golfskála en ljóst er að viðhald á honum hefur verið takmarkað síðustu ár og hann illa farinn. Nauðsynlegt er að fara í viðhald á ytra byrði hússins til að hindra streymi vatns inn í húsið. Búið er að meta hvað þarf að gera og mun sú vinna hefjast eins fljótt og verður leyfir.
Á meðan beðið er eftir góðu verðri til framkvæmda utandyra, ákvað stjórnin að taka til hendinni innandyra, laga til, endurnýja skrifstofuna, mála salinn, pússa upp gólfið og bera á það, betrumbæta aðstöðuna við eldhúsið o.fl. Þessar framkvæmdir hafa ekki verið kostnaðarsamar þar sem stjórnin hefur unnið þetta allt sjálf með dyggri aðstoð og góðum ráðum fagmanna innan klúbbsins. Má segja að þær systur Birna og Kiddý Hörn Ásgeirsdætur hafi borið mestan hita og þunga af skipulagningu og framkvæmdum innandyra.